Ketilbjöllur

Ég er byrjuð aftur í ketilbjöllunum í Kapiolanigarði á þriðjudags- og fimmtudags morgnum klukkan 7. Ég hafði verið í sambandi við þjálfarann og minntist á við hann að $20 fyrir hvern tíma væri allt of mikið. Hann lækkaði það niður í $15, sem hjálpaði ekki neitt rosalega.

Í síðustu viku hafði hann svo samband við mig aftur og sagðist frekar vilja hafa aðeins fleiri í tímanum til þess að byggja upp ‘momentum’ og bauð mér því að mæta frítt. Hvað get ég sagt, ég er greinilega bara svona ‘ossom’ ;)

Þessi líkamsrækt kallast Move og hér má finna blogg sem JT, þjálfarinn, skrifar eftir nánast hverja æfingu. Conceptið er svipað og Bootcamp og CrossFit heima, þar sem maður er stanslaust að hreyfa sig og að gera fjölbreyttar æfingar. Hver æfing hjá honum er 40-60 mín, breytilegt eftir því hvað við erum lengi að klára það sem okkur er sett fyrir.

Það er æðislegt að vakna snemma og hreyfa sig! Sérstaklega þegar veðrið er gott úti. Það er eins og dagurinn lengist og maður hefur meiri orku yfir daginn. Lykillinn er að fara nógu snemma að sofa svo maður ‘krassi’ ekki um hádegi :)

One Response to Ketilbjöllur

  1. Auður says:

    Geggjað að fá tilboð um að æfa frítt! :)

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.