Myndir

Síðustu 2 vikur hafa farið í myndagerð. Ég er á fullu að bæta, breyta og gera myndir fyrir ritgerðina mína. Segja má að myndagerðin sé mikilvægari en skrifin þar sem þær segja alla söguna, skrifin lýsa því svo sem þar fer fram.

Nancy fór í aðgerð á öxlinni (hún var með lítið bein vaxandi í liðnum sem veldur bólgu og óþægindum, beinbúturinn var tekinn í burtu) á föstudaginn og Brian, sem kom heim síðasta þriðjudag, er búinn að vera duglegur að sjá um hana. Brian var búinn að vera í Ekvador og Panama á ferðalagi; hann kláraði masterinn núna í október í jarðfræði.

Ég er orðin góð í því að vera þriðja hjólið. Ég fer og geri eitthvað með Nancy og Brian eða Michaelu og David; það verður gott að hitta mitt eigið hjól eftir bara rúman mánuð!

Við Tryggvi ætlum að fara í smá ferðalag þegar ég klára. Hann kemur til Hawaii í lok maí og við förum til Kauai (ein af Hawaii eyjunum) til þess að fara á kajak við Na Pali coast. Þetta er einn fallegasti staðurinn á eyjunum sem ekki er hægt að keyra að, maður verður að nálgast hann gangandi, af sjó eða lofti. Við förum svo og skoðum Las Vega- La- Phoenix svæðið í smá tíma. Ég er farin að hlakka últra mikið til. Við endum síðan í Baltimore þar sem Þórir (frændi Tryggva) og Rakel búa ásamt Róberti Tryggvi og ónefndum (og ófæddum) :)

Heimkoma er áætluð um 25.júní (þó svo við séum ekki búin að kaupa miða).

Myndirnar bíða…meira seinna…

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.