Já..núna er föstudagur. Föstudagurinn er eins og mánudagur fyrir mér þessar vikurnar. Helgi þýðir að það er enginn á skrifstofunni svo það er meiri friður fyrir mig að vinna.
Það helsta í fréttum er að ég skrifaði óvart yfir eina af ‘griddunum’ mínum svo ég verð að búa hana til aftur til þess að geta búið til mynd af þyngdargögnum. Skemmtilegt. Kaffið er besti vinur minn á meðan ég díla við þetta.
Ég sótti um doktorsnám á Íslandi. Mjög spennandi. Ég vona að ég fái það (það eru örugglega nokkuð margir umsækendur þar sem þetta snýr að gögnunum úr Eyjafjallajökli frá því í fyrra).
Svo fékk ég ferðastyrk, $400. Það tekur skólann ekki nema 16 vikur að láta mig fá þennan pening – bjúrókratar. Ég ætla rétt að vona að þeir geti lagt það inn á mig því ég hef ekkert með bandaríska ávísun að gera á Íslandi
Annars líður tíminn of hratt. Mig langar til þess að setja aðeins á pásu! Ég er þó farin að hlakka últra mikið til að hitta Tryggvann í lok maí, það verður æði!