Róðravélin…

…verður orsökin fyrir harðsperrum á morgun. Bootcampið heima er með ‘róðravinafélag’ sem hver sem er getur fengið inngöngu ef sá hin sami klára 15(kk)/13 (kvk)km á klst. Mig langar í inngöngu svo ég ákvað að æfa mig aðeins. Mér tókst að klára helminginn (6.5 km) á 27mín og 45 sek sem er minna en hálftími svo það er gott. Málið er bara að ég varð ekkert rosalega móð, ég er bara gjörsamlega búin í höndunum og fótunum!

Picnic deildarinnar er á sunnudaginn og við Jonathan ætlum því í Costco að versla. Ég er fyrrverandi formaður þess félags sem sér um að skipuleggja og því er ég að skipuleggja (þar sem við erum bara nýbúin að skipta um stjórn er gamla stjórnin aðallega að skipuleggja, þ.e. ég og Jonathan). Við munum spila mjúkbolta (e. softball) sem er eins og hafnarbolti nema með aðeins stærri og mýkri bolta svo það er auðveldara að slá. Grillað verður á staðnum og ströndin er rétt handan við hornið. Ég er farin að hlakka til.

Sunnudagurinn byrjar þó með ‘AIDS walk’ þar sem gengnir eru 5 km til þess að styðja við rannsóknir/eða itthvað-þannig sem tengist AIDS. Við ætlum að ganga nokkur saman (um 10 manns) undir formerkjum UHGS (University of Hawaii Geophysical Society – fyrrnefnt nemendafélag) og höfum við safnað saman um $100.

Ég svitnaði svo mikið eftir þennan róður að mér líður eins og ég hafi stokkið ofan í sundlaug. Fingurnir mínir eru ekki ánægðir með að ég sé að blogga þar sem þeir ýta vitlaust á annan hvorn lykil, þeir eru svo þreyttir eftir að halda utan um haldfangið. Maður fær blöðrur eftir langaveru í róðravél.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.