Vörn, ritgerð og hlaup

Ég bætti metið mitt í Diamond Head hlaupinu – 41 mín og 30 sek, ossom!

Nú fer að líða að vörn, hún er sett á 12.maí klukkan 14:30 í stofu 723 í POST byggingunni (svona EF einhver sem ég þekki er á Hawaii). Ég er búin að vera að skrifa og skrifa og gera myndir og laga myndir síðustu 2 vikur. Ég er búin að skrifa allt en núna taka við lagfæringar og fínpússun á textanum. Það kom mér í raun óvart hvað það var ‘auðvelt’ að klára að skrifa það sem ég þurfti að skrifa. Það ætti svo sum ekki að vera skrítið þar sem ég er búin að vera með þetta verkefni í heilanum í aðeins of langan tíma ;)

Það eru ossomlega spennandi tímar framundan. Tryggvi kemur 28. maí (4 vikur og 5.5 dagar) og við erum búin að vera að plana smá ferðalag. Við förum til Kaua’i, suður Californiu, Nevada, Arizona, Baltimore og New York áður en ég kem heim. Við munum meðal annars sjá Love sýninguna í Las Vegas, fara í Seaworld í San Diego, fara í Universal Studios í L.A., sjá Miklagljúfrið í Arizona, sjá Avenue Q söngleikinn á Broadway, hitta nýja frændan hans Tryggva, borða á ‘Heartattack grill’ í Arizona og síðast en ekki síst þá munum við sjá heimsins stærstu skjaldböku í Joshua Tree State Park, Californiu http://www.wlra.us/wl/wltortse.htm. Já, Kaninn er alveg með þetta.

Listinn heldur svo áfram, þessi ferð verður ekki slæm! Ég er virkilega farin að hlakka til.

Útskriftarathöfnin sjálf verður 14.maí og ég fæ að vera í kufli og með hatt (svona eins og í bíómyndunum). Því miður hendum við ekki höttunum í loftið í athöfninni, kannski ég geri það bara sjálf eftir athöfnina :D

2 Responses to Vörn, ritgerð og hlaup

  1. Auður says:

    Vá hvað það er stutt þangað til þú klárar! Þetta verður brilliant ferð hjá ykkur :)

  2. BenBen says:

    Þetta verður ekkert smá ferðalag og virðist vera vel skipulagt eins og allt sem þið takið ykkur fyrir hendur.

    Það verður skemmtilegt að sjá myndir frá útskriftinni, þú í kufli með hatt :-)

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.