Það er ekki gott…

…þegar siggið í lófanum rifnar og það byrjar að blæða. Ég hef núna lært að halda ‘rétt’ á ketilbjöllunni.

Ég mun hitta Richard á eftir og láta hann fá nýjasta eintakið sem telur núna 111 bls (með öllu; Magellan kóðanum meðtölum).

Hvirfilbyljarnir sem hafa riðið yfir suður hluta bandaríkjanna eru rosalegir. Það eru víst 32 dánir í Tennessee þaðan sem Michaela er frá. Enginn af hennar ættingjum hefur skaðast. Foreldrar hennar voru varir við mikinn vind og haglél í gær (sem fylgir gjarnan hvirfilbyljum). Þeir koma yfirleitt yfir sumartímann en ekki á vorinn. Ástæðan fyrir þeim er óstöðugleiki milli heits lofts á jörðu og kaldslofts í háloftunum (eða eitthvað þannig).

Best að klára að fara yfir breytingartillögur (hljómar eins og lagalegt orð) á ritgerðinni.

One Response to Það er ekki gott…

  1. Auður says:

    Já þetta er alveg hrikalegt með þessa hvirfilbyli. Þá getur maður ekki kvartað yfir snjó núna ;)

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.