Jeij! Ég sendi ritgerðin á nefndarmeðlimina í dag. Þá er það bara vörnin, fara yfir komment, setja ritgerðina í greinarform og gefa hana út!
Þetta er allt að gerast eitthvað svo hratt. Tryggvi kemur eftir 3 vikur, 5 daga og 18 klst. Ég er farin að hlakka svoo mikið til að hitta hann.
Það er orðið heitt heitt heitt hérna á Hawaii. Næturnar eru enn bærilegar en ef ég vil sofa lengur en níu þarf ég að setja loftkælinguna í gang, það verður svo heitt. Ég fór út að hlaupa á föstudagsmorguninn klukkan 7:30 og hélt ég ætlaði að bráðna. Maður þarf greinilega að fara upp úr 6 á morgnana til þess að blotna ekki eins og baðkari hafi verið hellt yfir mann!
Ég keypti skyr í fyrradag. Það kostaði $4. En það var gott. Setti blackberries í það (þetta var hreint skyr) og Nancy fannst það mjög gott. Ég mun ekki kaupa aftur skyr á Hawaii. Það kómíska við skyrið er að það stóð ‘Sustainable Iceland’ framan á því á einhvejru logoi sem ég hef aldrei séð áður. Mér finnst það ekki beint sjálfbærni að senda mjólkurafurð yfir hálfan hnöttinn. Kannski eru einhverjir hippar líklegri til þess að kaupa skyrið ef það stendur sustainable framan á því.
Híhí…sustainable! Þú getur líka fengið þér nóg af skyri eftir nokkrar vikur